Örugg símanotkun – öryggisvitund og svikavarnir - Ísafjörður
14. október 2026
Stutt og hagnýtt námskeið fyrir eldra fólk og aðra sem vilja nota snjallsímann af meira öryggi og þekkja betur þær hættur sem geta fylgt netnotkun.
Farið verður yfir einfaldar öryggisstillingar, lykilorð, PIN-númer, skjálás og mikilvægi uppfærslna, auk þess sem fjallað verður um rafræn skilríki. Einnig verður fjallað um hvernig þekkja má svikaskilaboð, falska hlekki og grunsamleg símtöl, hvað best er að gera ef eitthvað virðist ekki vera með felldu og hvað á að gera ef illa fer.
Þátttakendur fá hagnýt ráð sem hjálpa þeim að nota símann örugglega og af meiri vissu í daglegu lífi.
Engin sérstök tæknikunnátta er nauðsynleg en þátttakendur þurfa að koma með símann sinn.
Leiðbeinandi: Ármann Haraldsson.
Tími: Miðvikudagur 14. október kl. 15:00-17:00.
Lengd: 2 klst.
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði.
Verð: 12.000 kr.
| Hópur | Dags | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
|---|

