Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Örugg símanotkun – öryggisvitund og svikavarnir - Patreksfjörður

28. október 2026

Stutt og hagnýtt námskeið fyrir eldra fólk og aðra sem vilja nota snjallsímann af meira öryggi og þekkja betur þær hættur sem geta fylgt netnotkun.

Farið verður yfir einfaldar öryggisstillingar, lykilorð, PIN-númer, skjálás og mikilvægi uppfærslna, auk þess sem fjallað verður um rafræn skilríki. Einnig verður fjallað um hvernig þekkja má svikaskilaboð, falska hlekki og grunsamleg símtöl, hvað best er að gera ef eitthvað virðist ekki vera með felldu og hvað á að gera ef illa fer.

Þátttakendur fá hagnýt ráð sem hjálpa þeim að nota símann örugglega og af meiri vissu í daglegu lífi.

Engin sérstök tæknikunnátta er nauðsynleg en þátttakendur þurfa að koma með símann sinn.

Leiðbeinandi: Birna Friðbjört Hannesdóttir.
Tími:  Miðvikudagur 28. október kl. 17:00-19:00.  
Lengd: 2 klst.  
Staður:  Vatneyrarbúð, Patreksfirði.
Verð: 12.000 kr.

Félagsfólk Verk Vest, Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvíkur, Sameykis og Kjalar stéttarfélags, auk félagsfólks í stéttarfélögum sem eiga aðild að Iðunni, getur sótt námskeiðið sér að kostnaðarlausu.  Aðrir þátttakendur eru hvattir til að kanna rétt sinn til styrks vegna námskeiðsgjalds hjá sínu stéttarfélagi eða starfsmenntasjóði.

Hópur Dags Tími Staðsetning Verð Skráning