Raunfærnimat fyrir leikskólaliða- og stuðningsfulltrúanám
Vor 2026
Menntaskólinn á Ísafirði mun bjóða upp á leikskólaliða- og stuðningsfulltrúanám haustið 2026. Hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða er hægt að komast í raunfærnimat sem getur stytt námsfólki leiðina í gegnum námið.
Raunfærnimat er leið til að meta þá færni, þekkingu og reynslu sem fólk hefur öðlast með ýmsum hætti, s.s. starfsreynslu, starfsnámi, frístundanámi, skólanámi, félagsstörfum og fjölskyldulífi á móti einingum á framhaldsskólastigi eða viðmiðum atvinnulífsins. Matið getur mögulega stytt nám og verið hvatning til að ljúka námi sem þegar var hafið.
Raunfærnimat er ætlað þeim sem hafa náð 23 ára aldri og hafa starfað í greininni í a.m.k. þrjú ár.
Fræðslusjóður greiðir fyrir þátttakendur sem hafa ekki lokið formlegri menntun.
Ráðgjafar Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða gefa allar frekari upplýsingar um mat á raunfærni. Skráðu þig hér fyrir neðan og við höfum samband og förum yfir málið með þér.
| Hópur | Dags | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
|---|

