Skyndihjálp 4 klst - Ísafjörður
11. nóvember 2026
Fjögurra kukkustunda námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja læra eða rifja upp grunnatriði skyndihjálpar og öðlast lágmarksfærni í að veita slösuðum eða veikum aðstoð í bráðatilfellum. Stutt og gott námskeið fyrir alla.
Farið yfir grundvallaratriði í skyndihjálp og endurlífgun. Markmiðið er að þátttakendur verði hæfir til að veita fyrstu hjálp á slysstað. Námskeiðið er líka fínt fyrir þá sem áður hafa farið á skyndihjálparnámskeið og vilja rifja upp og viðhalda þekkingu sinni.
Kennari: Auður Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur og skyndihjálparkennari.
Lengd: 4 klukkustundir (tvö skipti skipti).
Tími: Miðvikudag 11. og fimmtudag 12. nóvember kl 8:15-10:15.
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða Suðurgötu 4 Ísafirði.
Verð: 13.500 kr.
Félagsfólk Verk Vest, Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvíkur, Sameykis og Kjalar stéttarfélags, auk félagsfólks í stéttarfélögum sem eiga aðild að Iðunni, getur sótt námskeiðið sér að kostnaðarlausu. Aðrir þátttakendur eru hvattir til að kanna rétt sinn til styrks vegna námskeiðsgjalds hjá sínu stéttarfélagi eða starfsmenntasjóði.
| Hópur | Dags | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
|---|

