Bakskóli - nýtt námskeið hjá Fræðslumiðstöðinni
	
		Þriðjudaginn 15. mars n.k. hefst námskeið í bakskóla Sjúkraþjálfunar Vestfjarða ehf. í samvinnu við Fræðslumiðstöð Vestfjarða.  Þetta er í fyrsta skipti sem slíkt námskeið er í boði hjá Fræðslumiðstöðinni. Námskeiðið hentar bæði þeim sem hafa átt við bakvandamál að stríða og ekki síður þeim sem vilja stunda fyrirbyggjandi starf. 
Á námskeiðinu verður farið í uppbyggingu stoðkerfisins, hreyfingafræði, líkamsbeitingu, líkamsstöðu og líkamsvitund, áhættuþætti og verklegar æfingar.
Námskeiðið stendur í 4 vikur, kennt tvisvar sinnum í viku klukkustund í senn. Tímar eru á þriðjudögum og fimmtudögum kl 17-18.
Kennarar eru Ólafur Halldórsson og Steingrímur Þorgeirsson lögg. sjúkraþjálfarar.
		
	 Deila