Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Baráttan um Vestfirði á Sturlungaöld - fyrirlestur 28. apríl

Í vetur hefur Fræðslumiðstöðin í samstarfi við Fornleifastofnun Íslands, Vestfirði á miðöldum, Minjavörð Vestfjarða og fleiri aðila, gengst fyrir röð fyrirlestra undir yfirskriftinni Menningararfurinn. Fyrirlestrarnir hafa verið í gegnum fjarfundabúnað og hægt að sækja þá á Ísafirði, Patreksfirði og Hólmavík. Umfjöllunarefnin hafa verið fjölbreytt og fróðleg, til dæmis Vatnsfjörður, mannabein og mannamein, Þjóðfræðistofa og þjóðmenning og saga í atvinnusköpun.

Fyrirlestrarnir hafa verið þriðja fimmtudag í mánuði en þar sem þann dag ber upp á skírdag og sumardaginn fyrsta þá verður apríl fyrirlesturinn haldinn viku seinna eða fimmtudaginn þann 28. kl 17:00-18:00. Yfirskriftin að þessu sinni er Baráttan um Vestfirði á Sturlungaöld. Þar mun Torfi H Tulinius fjalla um helstu þætti þeirrar hatrömmu baráttu sem geisaði milli valdamanna á Vestfjörðum á fyrra hluta 13. aldar og hvernig hún leiddi til þess að höfðingjar af öðrum svæðum náðu undirtökum þar
Deila