Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Björn Hafberg með ráðgjöf í Vesturbyggð og Tálknafirði

image
Björn Hafberg


Björn Hafberg, náms- og starfsráðgjafi verður í Vesturbyggð og Tálknafirði miðvikudaginn 2. febrúar og föstudaginn 4. febrúar 2011.

Björn mun heimsækja vinnustaði og vera með einstaklingsviðtöl til að kynna náms- og starfsráðgjöf.

Ráðgjöfin er fólki að kostnaðarlausu.

Einstaklingsviðtölin eru tilvalin fyrir þá sem vilja skoða stöðu sína og möguleika. Svo sem;

? Fá upplýsingar um nám?
? Fá upplýsingar um styrki til náms?
? Setja sér markmið í námi og starfi?
? Kanna færni sína í starfi?
? Taka áhugasviðspróf?
? Rækta sjálfan sig?

Gríptu tækifærið!
Skráðu þig hjá Birni Hafberg í síma 899 0883
Deila