Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Grunnmenntaskólanum á Þingeyri slitið

Nemendur og nokkriri kennarar

Grunnmenntaskólanum á Þingeyri var slitið laugardaginn 6. desember s.l. Níu nemendur tóku þá við viðurkenningarskjölum frá Smára Haraldssyni forstöðumanni Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða í lok síðustu kennslustundar.

Námið hófst síðast liðið vor og var sett á laggirnar af Fræðslumiðstöðinni, Verkalýðsfélagi Vestfirðinga og Vinnumálastofnun þegar fyrirtækið Vísir óttaðist að þurfa að loka fiskvinnslunni á staðnum. Ástandið reyndist þó ekki eins slæmt og óttast var þannig að vinnan vorið 2008 varð meiri en gert var ráð fyrir. Þess vegna varð minna úr náminu þá um vorið, en þeim mun meira nú í haust. Hafa nemendur Grunnmenntaskólans mætt alla virka daga og flesta laugardaga frá 1. september. Má kalla þetta ótrúlega elju og þrautseigju. Slíkt er ekki hægt nema með miklum sjálfsaga og skemmtilegum félagsskap.

Grunnmenntaskólinn er 300 kennslustundir og kenndur er samkvæmt námskrá frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Námið er metið til allt að 24 eininga í framhaldsskóla. Það samanstendur af 13 námsþáttum og komu 12 manneskjur að kennslunni.

Meðfylgjandi mynd er af nemendum og nokkrum kennurum við útskriftina.
Deila