Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Heimavinnsla mjólkurafurða með áherslu á ostagerð

Framundan er námskeið í heimavinnslu mjólkurafurða með áherslu á ostagerð. Athygli skal vakin á því að námskeiðið er alls ekki eingöngu fyrir þá sem eru með kúabúskap. Ostagerð er hægt að stunda nánast í hvaða eldhúsi sem er og hægt að nota venjulega mjólk sem keypt er út í búð. Þetta námskeið ætti því að freista allra snillinga í eldhúsinu. Farið verður nánar í einstaka þætti ostaframleiðslu. Framleiðsla einstakra ostategunda skoðuð, til að fá tilfinningu fyrir hver er munur á framleiðslu á t.d. Skyri, Brauðosti, Gráðaosti og smurostum og hvað þarf til. Gerðar verklegar tilraunir/sýnikennsla með einfalda framleiðslu. Möguleikar heimaframleiðslu og samanburður við hefðbundna mjólkurvinnslu. Rætt ýtarlegar um tæki, tól og aðstöðu, sem þarf fyrir hverja ostategund. Næstu skref. Umræður um framleiðsluaðstæður og möguleika þáttakenda. Hámarksfjöldi 12 manns. Ennþá vantar nokkrar skráningar til að næg þátttaka náist og hægt verði að halda námskeiðið annað hvort á Reykhólum eða Hólmavík.
Leiðbeinandi: Þórarinn Egill Sveinsson, mjólkurverkfræðingur
Staður og stund: mán. 19. Október kl 10:00-17:30 (8,5 kennslustundir) Reykhólum eða Hólmavík.
Verð: 12.000.- kr.
Skráningar: endurmenntun@lbhi.is eða í síma 843 5302 / 433 5000 (fram komi nafn, kennitala, heimili og sími).
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 2000 kr (óafturkræft) á reikninginn 354-26-4237, kt. 411204-3590. Senda staðfestingu á netfangið endurmenntun@lbhi.is.
Einstaklingar á lögbýlum eiga möguleika á að sækja um styrk hjá Starfsmenntasjóði bænda (www.bondi.is)
Deila