Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Kynning á smiðju í hönnun og handverki á Bíldudal

Þriðjudaginn 16. apríl kl. 14:30 verður haldin kynning í Læk á Bíldudal á námsskrá sem kallast Smiðja í hönnun og handverki.

Smiðjan er sniðin að þörfum þeirra sem vilja fá innsýn í hönnunarferlið og kynnast af eigin raun hvað þarf til að þróa nýjar hugmyndir og koma þeim í nothæfan búning. Nemendur fá einnig þjálfun í að afla sér þekkingar og nýta hana til þess að öðlast leikni, hæfni og færni til að framleiða afurð.

Smiðja eins og þessi var haldin á Ísafirði í febrúar og þótti takast mjög vel. Í smiðjunni er unnið með þema sem tengist Vestfjörðum og munu þátttakendur þróa hugmyndir og afurðir sem gætu orðið söluvarningur fyrir ferðamenn. Unnið verður í hópum auk þess sem nemendur þróa verkefni hver fyrir sig. Nemendur fá tækifæri til að kynna sér aðferðafræði við markaðsrannsóknir, vöruþróun og markaðssetningu. Unnið verður með mismunandi tækni og efnivið.

Aðalkennari og umsjónarmaður smiðjunnar er Elísabet Gunnarsdóttir, auk hennar munu ýmsir sérfræðingar, hönnuðir og handverksfólk kenna hluta smiðjunnar hver á sínu sviði.

Smiðjan er öllum opin meðan pláss leyfir.

Upplýsingar hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða í síma 456-5025.


Frá smiðju í hönnun og handverki á Ísafirði í febrúar 2013
Frá smiðju í hönnun og handverki á Ísafirði í febrúar 2013.
Deila