Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Listin að taka próf

Margir námsmenn kannast við þann kvíða sem fylgt getur því að taka próf. Fimmtudaginn 4. nóvember kl. 18:00 ? 20:40 býður Fræðslumiðstöðin upp á námskeið sem kallast Að taka próf og vinna á prófkvíða. Námsmenn eru hvattir til að nýta sér þetta tækifæri ef það má verða til þess að auðvelda próftöku.

Á námskeiðinu verður fjallað um mismunandi gerðir prófa s.s. ritgerða/ krossapróf og hvað þarf sérstaklega að hafa í huga við hverja prófgerð. Skoðaðar verða mismunandi aðferðir við prófundirbúning s.s. lestraraðferðir, tímaskipulagningu og sjálfsmat m.a. með vinnu við kortlagningu hvers og eins í gegnum svokallaðan námshring. Einnig verður leitast við að greina helstu orsakaþætti prófkvíða og leiðir til að ráðast gegn honum.

Námskeiðið getur hentað nemendum í efstu bekkjum grunnskóla, í framhaldsskóla eða í háskólanámi. Kennari er Björn Hafberg náms- og starfsráðgjafi. Námskeiðið er haldið í húsakynnum Fræðslumiðstöðvarinnar, að Suðurgötu 12, Ísafirði og kostar 1.000 kr.
Deila