Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Menntaþing á Ströndum

Fræðslumiðstöð Vestfjarða tekur þátt í menntaþingi sem haldið er í Strandabyggð í dag, fimmtudaginn 12. janúar.

Þingið hefst kl. 16:30, en þar verður fjallað um mikilvægi þroska og menntunar fólks á öllum aldursstigum. Þingið er liður í 100 ára afmæli skólahalds á Hólmavík. Á Menntaþingi verður horft til framtíðar og hvert er stefnt í skólahaldi á Ströndum.

Dagskrá Menntaþings á Ströndum 2012:

  • Setning þingsins - Ingibjörg Valgeirsdóttir sveitarstjóri Strandabyggðar

  • Ávarp - Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra

  • Flæði og kenningar - Mihaly Csikszentmihalyi, Kristín Gísladóttir og Margrét Halldóra Gísladóttir leikskólastjórnendur í Uglukletti í Borgarbyggð kynna leikskólastefnuna Flæði sem verið er að innleiða í leikskólanum Lækjarbrekku á Hólmavík

  • Menntun barna - Margrét Pála Ólafsdóttir skólastjóri, uppeldisfrömuður og hugmyndasmiður Hjallastefnunnar fjallar um mikilvægar áherslur í skólastarfi og menntun barna

  • Menntun og möguleikar - Arnar S. Jónsson tómstundafulltrúi Strandabyggðar fjallar um menntun og menntunarmöguleika frá unglingsárum til fullorðinsára

  • Lærum allt lífið - Björn Vilhjálmsson meistaranemi í fullorðinsfræðslu fjallar um þroska, lærdóm allt lífið og hugtakið ,,lifuð þekking".


Pallborðsumræður verða að þinginu loknu. Einnig koma nemendur úr Tónskólanum á Hólmavík fram með tónlistaratriði auk þess sem leikskólinn Lækjarbrekka, Grunn- og tónskólinn á Hólmavík og Fræðslumiðstöð Vestfjarða verða með kynningu á starfsemi sinni fyrir gesti þingsins.

Fundarstjóri er Ingibjörg Benediktsdóttir formaður Menntasviðs í Strandabyggð.

Allir íbúar á Ströndum og í nágrannasveitarfélögum sem og aðrir landsmenn eru boðnir hjartanlega velkomnir á þingið.

image
Kristín Sigurrós Einarsdóttir, starfsmaður Fræðslumiðstöðvarinnar á Ströndum.
Deila