Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Nemendur í Landnemaskólanum og íslenskunámi fyrir útlendinga borða saman.

Nemendur í Landnemaskólanum á Patreksfirði og nemendur í íslenskunámi fyrir útlendinga hittust síðastliðið laugardagskvöld og borðuðu saman. Á boðstólnum var íslenskt hangikjöt og reykt svínakjöt, pólskar pylsur vafðar í beikon, þorskur í ediki, svínahakk í kartöflubollum, tvær gerðir af saltiskbollum á portúgalskan hátt og fleira og fleira. Nemendur eru frá Póllandi, Portúgal, Noregi og Egyptalandi. Þetta mæltist vel fyrir og er stefnt að því að hafa sama háttinn á í vor þegar námi lýkur.
Deila