Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Opið hús á föstudag

Opið hús í Vestrahúsinu á Ísafirði
Föstudaginn 1. apríl, milli klukkan 15 og 18, bjóða stofnanir og fyrirtæki í Vestrahúsinu, Suðurgötu 12 á Ísafirði, gestum og gangandi að kynnast þeirri fjölbreyttu starfsemi sem fram fer í húsinu. Íbúar á norðanverðum Vestfjörðum eru hvattir til að nota tækifærið og líta við. Víða í húsinu verður boðið upp á veitingar og starfsmenn verða með svör á reiðum höndum um starfsemina, tækjakost og annað sem verður til sýnis.

Meðal þess sem boðið verður upp á:

- Í blautrými Hafró á jarðhæð verður tækjabúnaður stofnunarinnar til sýnis, þ.á m. kafbátur og neðansjávarmyndavél, auk fiska af ýmsu tagi
- Kerecis býður gestum að prófa krem sem unnin eru úr fiskafurðum og kynnir grunndvallaratriði í kremaframleiðslu
- Snjóflóðasetur Veðurstofunnar sýnir myndir og myndbönd frá rannsóknum sínum
- Fræðslumiðstöð Vestfjarða kynnir starfsemi sína. Þar hanga einnig uppi glæsilegir borðar um frumkvöðla í fullorðinsfræðslu á Vestfjörðum sem forvitnilegt er að skoða
- Nýsköpunarmiðstöð kynnir m.a. stafrænu smiðjuna Fab Lab og ýmiskonar nýsköpunaraðstoð
- Myndasýning frá starfsemi Háskólaseturs í gegnum tíðina
- Kynning á viðfangsefnum meistaranema í haf- og strandsvæðastjórnun
Stofnanir og fyrirtæki í Vestrahúsinu:

- Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða
- Eik teiknistofa
- Fjórðungssamband Vestfirðinga
- Fjölmenningarsetur Íslands
- Fræðslumiðstöð Vestfjarða
- Hafrannsóknarstofnun
- Háskólasetur Vestfjarða
- Impra á Nýsköpunarmiðstöð
- Ísfang
- Kerecis
- Matís
- Meleyri
- Rauði kross Íslands
- Skipaafgreiðsla Gunnars Jónssonar
- Snjóflóðasetur Veðurstofu Íslands
- Starfsendurhæfing Vestfjarða
- Vestri
- Vinnueftirlitið
- Vinnumiðlun á Vestfjörðum
- Þýðingarmiðstöð Utanríkisráðuneytisins
Deila