Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Raki og mygla í húsum - skráningarfrestur að renna út

Nú er hver að verða síðastur að skrá sig á námskeið um raka og myglu í húsum sem haldið verður hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða á Ísafirði föstudaginn 3. maí kl. 10:00-16:00, en skráningarfrestur rennur út 1. maí. Námskeiðið er á vegum IÐUNNAR og eru kennarar Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, BSc í líffræði og meistaranemi í lýðheilsuvísindum og Kristinn Alexandersson, byggingatæknifræðingu VSÓ.

Á þessu námskeiði verður fjallað um raka í húsnæði og myglusveppi sem iðulega fylgja viðvarandi raka í byggingarefnum. Markmið þess að að kenna þátttakendum að þekkja myglu og kynna þeim ráðstafanir gegn henni. Farið verður yfir helstu galla á byggingafræðilegum lausnum og helstu mistök við byggingu húsa sem orsaka leka- og rakavandamál í húsum og hvernig megi koma í veg fyrir þau. Farið verður lauslega í loftun og útreikninga á rakastreymi gegnum byggingahluta, fjallað um byggingaraka og greiningu rakaskemmda. Fjallað verður um lífsskilyrði myglusveppa, hvar þeir þrífast, hvernig má finna þá og uppræta.
Deila