Raunfærnimat fyrir leikskólaliða og stuðningsfulltrúanám
Menntaskólinn á Ísafirði mun bjóða upp á leikskólaliða- og stuðningsfulltrúanám haustið 2026. Námið veitir þekkingu og færni til að starfa með börnum í námi og leik. Áhersla er lögð á uppeldisfræði, sálfræði, listsköpun og notkun leikja. Leikskólaliðar starfa við hlið annars fagfólks í leikskólum.
Hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða stendur þátttakendum til boða að fara í raunfærnimat, sem getur stytt leiðina í gegnum námið verulega.
Raunfærnimat felur í sér að metin er sú þekking og færni sem einstaklingar hafa aflað sér utan hefðbundins skólanáms. Þar getur verið um að ræða starfsreynslu, starfsnám, frístundanám, félagsstörf eða reynslu úr daglegu lífi. Þessi færni er metin til eininga á framhaldsskólastigi eða samkvæmt viðmiðum atvinnulífsins, sem getur bæði sparað tíma og aukið hvatningu til að ljúka námi.
Mat á raunfærni er ætlað einstaklingum sem eru 23 ára eða eldri og hafa að minnsta kosti þriggja ára reynslu í viðkomandi grein. Fræðslusjóður greiðir þátttökugjald fyrir þau sem ekki hafa lokið formlegri menntun. Sumir starfsmenntasjóðir styrkja þátttöku í raunfærnimati fyrir þau sem hafa útskrifast úr öðru námi.
Ráðgjafar Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða veita allar nánari upplýsingar um raunfærnimat - ekki hika við að hafa samband í síma 456 5025 eða með tölvupósti á frmst@frmst.is">frmst@frmst.is
Nánari upplýsingar um námið sjálft er að finna á vef Menntaskólans á Ísafirði misa.is

