Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Samkomulag við Háskólasetrið um þjónustu við fjarnema á Ströndum og sunnanverðum Vestfjörðum

Háskólasetri Vestfjarða er ætlað að þjónusta fjarnema á öllum Vestfjörðum, en hefur til þessa haft aðgang að starfsmönnum Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða þar sem þurft hefur, enda sjálft ekki með starfsmenn á Ströndum né á sunnanverðum Vestfjörðum. Þau tímamót urðu í vikunni að þetta samstarf Háskólasetursins og Fræðslumiðstöðvarinnar vegna fjarnema var fest í sessi með samkomulagi sem þeir Smári Haraldsson og Peter Weiss undirrituðu á dögunum. Samkomulagið er þríþætt og felur í sér að Fræðslumiðstöðin veitir háskólanemum á Ströndum og sunnanverðum Vestfjörðum þjónustu varðandi próf, fjarfundi og upplýsingagjöf og almenna aðstoð. Kennslustjóri Háskólaseturs mun þannig bera ábyrgð á að koma próftöflum og upplýsingum um próf til Fræðslumiðstöðvarinnar, sem eftir það tekur ábyrgð á prófunum, það er fyrirlögn, yfirsetu og póstlagningu, líkt og verið hefur. Þá segir í samkomulaginu að nemendur sem þurfa á fjarfundabúnaði að halda til að sækja háskólakennslu eigi að geta reytt sig á fjarfundabúnað Fræðslumiðstöðvarinnar á áðurnefndum svæðum. Loks er kveðið á um að starfsmenn Fræðslumiðstöðvarinnar geti veitt grunnupplýsingar um að stýra tæknibúnaði vegna fjarnáms.
Deila