Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Síminn minn - námskeið á Bíldudal

1 af 2

Í byrjun janúar hélt Fræðslumiðstöð Vestfjarða hagnýtt námskeið á Bíldudal fyrir eldra fólk sem vill verða öruggara í notkun snjallsíma. 

Á námskeiðinu var farið yfir grunnstillingar síma, aðgengismál og nytsamlegar flýtileiðir. Þátttakendur kynntust gagnlegum öppum, samskiptalausnum og því hvernig senda má og taka á móti myndum. Sérstök áhersla var lögð á netöryggi, svikavarnir og örugga netnotkun. Að auki var boðið upp á kynningu á ChatGPT og gervigreind, með áherslu á einfalda og hagnýta notkun slíkra verkfæra.

Kennari á námskeiðinu var Birna Hannesdóttir. Námskeiðið var haldið í góðu samstarfi við Félag eldri borgara í Vesturbyggð sem tók þátt í kostnaði. Námskeiðið var mjög vel sótt og var það samdóma álit þátttakenda að vel hefði tekist til og mikilvægt að bjóða upp á svona fræðslu fyrir eldra fólk.

Sambærilegt námskeið verður haldið á Ísafirði í febrúar þar sem leiðbeinandi er Ármann Haraldsson. nánari upplýsingar um það má finna hér.

Deila