Réttindi og skyldur nemenda
Fræðslumiðstöð Vestfjarða leggur áherslu á að skapa jákvætt og hvetjandi námsumhverfi þar sem gagnkvæm virðing, jafnrétti og fagmennska eru höfð að leiðarljósi. Nemendur og starfsfólk bera sameiginlega ábyrgð á góðum samskiptum og árangursríku námi.
Réttindi nemenda
Nemendur Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða eiga rétt á að:
- Komið sé fram við þá af virðingu, kurteisi og sanngirni, án mismununar, eineltis eða áreitni.
- Fá skýrar upplýsingar um markmið, innihald, skipulag og kröfur viðkomandi námskeiðs eða námsleiðar.
- Njóta faglegrar kennslu og leiðsagnar þar sem tekið er mið af ólíkum þörfum, reynslu og forsendum nemenda.
- Stunda nám í öruggu og styðjandi umhverfi þar sem þeir fá tækifæri til að tjá skoðanir sínar og taka virkan þátt.
- Fá sanngjarnt og faglegt námsmat, þar sem við á, og staðfestingu á þátttöku eða námslokum samkvæmt skilyrðum viðkomandi náms.
- Njóta trúnaðar og persónuverndar í samskiptum við kennara og starfsfólk.
- Koma á framfæri ábendingum og kvörtunum um nám, kennslu og þjónustu miðstöðvarinnar.
Skyldur nemenda
Nemendum ber að:
- Taka ábyrgð á eigin námi, mæta stundvíslega, taka virkan þátt í kennslu og verkefnavinnu og tilkynna forföll.
- Sýna samnemendum, kennurum og starfsfólki virðingu, kurteisi og tillitssemi.
- Stuðla að jákvæðu námsumhverfi og virða rétt annarra til náms og þátttöku.
- Gæta trúnaðar um persónuleg málefni samnemenda.
- Ganga vel um húsnæði, búnað og námsgögn og fylgja reglum og leiðbeiningum sem gilda á kennslustað.
Ábendingar og kvartanir
Fræðslumiðstöð Vestfjarða tekur ábendingum og kvörtunum alvarlega og nýtir þær til að bæta starfsemina. Nemendur geta komið ábendingum og kvörtunum á framfæri við kennara, umsjónarmann náms eða forstöðumann.
Leitast er við að leysa mál eins fljótt og kostur er. Ef ágreiningur um ákvarðanir eða vinnubrögð starfsfólks leysist ekki með aðkomu forstöðumanns getur viðkomandi vísað málinu til stjórnar Fræðslumiðstöðvarinnar.
Ábendingum og kvörtunum má einnig koma á framfæri með tölvupósti á frmst@frmst.is

