Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Smádýralíf - fjölbreytni og fegurð

imageFimmtudaginn 17. nóvember kl. 17 ? 18 (kl. 5 ? 6 síðdegis) verður annar fyrirlesturinn í námskeiðaröð á vegum Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða, Náttúrstofu Vestfjarða og Rannsóknaseturs Háskóla Íslands, um náttúrufræðileg efni.

Dr. Þorleifur Eiríksson dýrafræðingur og forstöðumaður Náttúrustofu Vestfjarða mun þá fjalla um smádýrin í umhverfi okkar og þá undraveröld sem þau skapa. Þorleifur mun fjalla um hvaða dýr þetta eru ? flokkun þeirra ? helstu hópa ? lífsferla ? lifnaðarhætti ? mikilvægi og hvort einhver þeirra beri að varast.

Fyrirlesturinn verður haldinn í húsakynnum Fræðslumiðstöðvarinnar að Suðurgötu 12 en verður jafnframt sendur í gegnum fjarfundabúnað til annarra staða á Vestfjörðum þar sem áhugi er á að vera með.
Þátttökugjald eru 1.000 kr.

Ekki er þörf á að skrá sig, en það er þó unnt á vef Fræðslumiðstöðvarinnar, www.frmst.is, eða í síma 456 5025
Deila