Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Smáskipanám fer vel af stað

Í síðustu viku fór af stað smáskipanám hjá Fræðslumiðstöðinni en það kemur í stað þess sem áður var nefnt 30rl réttindanám (pungapróf). Um er að ræða nokkuð langt nám eða allt að 144 kennslustundir og veitir það atvinnuréttindi á skip 12 metrar og styttri að skráningarlengd, m.v. að hafa lokið 12 mánaða siglingatíma. Þátttakendur eru 10 talsins sem telst vera nokkuð gott.
Deila