Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Tölvunámskeið hefst á Hólmavík í október ef næg þátttaka fæst

Námskeið fyrir þá sem nota tölvur á skapandi hátt í starfi eða til heimilisnota verður haldið á Hólmavík í vetur og hefst það fimmtudaginn 15. október, ef næg þátttaka fæst. Athygli er vakin á því, að hægt er að halda námskeiðið á einni helgi annars staðar á svæðinu ef næg þátttaka fæst, en vaninnn er að miða við lágmark átta manns. Á námskeiðinu verður farið í brot af því besta sem skrifstofupakkinn Office 2007 hefur að bjóða. Náminu á Hólmavík verður skipt í stuttar lotur annan fimmtudag í hverjum mánuði þar sem kenndur verður einn efnisþáttur hvert kvöld, svo sem að búa til glærur, búa til dagatöl, prenta á límmiða og umslög, setja upp jólakort, vinna með töflur og fleira sem forritin bjóða.
Mælt er með því að koma með fartölvur. Einnig bjóðast afnot af tölvum í skóla.Kennslutími er þrjár kennslustundir í einu, 40 mínútur hver, alls 6 skipti. Kennt verður frá kl. 19.30 til kl. 21.30 annan fimmtudag í mánuði. Gjald fyrir hvern nemanda er kr. 18.900. Kennari er Kristín Sigurrós Einarsdóttir verkefnastjóri hjá Fræðslumiðstöðinni. þátttakendur eru minntir á að skoða rétt sinn hjá stéttarfélögum til endurgreiðslu námskeiðsgjalda.



Deila