Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Íslenskunám fyrir starfsfólk Arnarlax

Hluti af starfsmannahópi Arnarlax sem lauk 80 klukkustunda íslenskunámi.
Hluti af starfsmannahópi Arnarlax sem lauk 80 klukkustunda íslenskunámi.

Undanfarna mánuði hefur erlent starfsfólk Arnarlax á Bíldudal sótt íslenskunám hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Kennt var samkvæmt námskránni Að lesa og skrifa á íslensku frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, alls 80 klst. Námið hófst um miðjan mars og lauk í lok maí. Kennt var vikulega á fimmtudögum og föstudögum kl. 8-16 og fór kennslan fram í kaffistofu Arnarlax.

Nemendurnir voru alls 34 frá ýmsum löndum; Spáni, Kína, Taílandi, Marokkó, Póllandi, Úkraínu, Búlgaríu, Slóveníu og Venesúela en eru nú búsett á Patreksfirði, Tálknafirði og Bíldudal. Þau hafa dvalið mislengi á Íslandi og eru mislangt komin í íslensku en lögð var áhersla á að mæta hverju og einu þar sem þau eru stödd.

Kennarar og leiðbeinendur voru Barbara Gunnlaugsson, Sædís María Jónatansdóttir, Helga Konráðsdóttir og Ilona Dobosz.  Þær eru sammála um að vel hafi tekist til, nemendurnir voru áhugasamir og sýndu góðar framfarir á þessum vikum. Nemendurnir voru líka almennt ánægðir eins og þessi dæmi um umsagnir í lok námskeiðsins sýna:

  • Fyrir námskeiðið fannst mér ómögulegt að læra íslensku og nú sé ég það sem mögulegt.
  • The whole course was really interesting, sure I learned something useful and something new. It was a pleasure to meet the teachers that tried to explain everything to us so we could understand.
  • Námskeiðið var áhugavert og verður í minningunni.
  • Framúrskarandi kennarar. Takk Arnarlax.
  • I want more teaching to happen. I felt I learned more and I wanted to learn more and I really liked both teachers. If possible, I would like to have more lessons. Thank you very much. 
  • Þökk sé Arnarlaxi og kennurum, allt var frábært.

Í ljósi allrar umræðu um mikilvægi þess að auðvelda fólki af erlendum uppruna aðgang að íslensku máli og þar með íslensku samfélagi þá er til fyrirmyndar að fyrirtæki bjóði starfsfólki sínu að sækja íslenskunám á vinnutíma. Fræðslumiðstöðin vill þakka Arnarlaxi fyrir sérlega gott samstarf og vonar að þessir nemendur fái tækifæri til þess að halda áfram að æfa sig í íslensku bæði í vinnunni og úti í samfélaginu.

Frí námskeið með stuðningi stéttarfélaga

Það er ánægjulegt að segja frá því að samstarf Fræðslumiðstöðvarinnar við nokkur stéttarfélög um frí námskeið fyrir félagsfólk heldur áfram nú á vorönn. Félögin sem um ræðir eru Verk VestVerkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur, Sameyki og Kjöl. Samstarfið felur í sér að starfsmenntasjóðir félaganna greiða að fullu þátttökugjöld ýmissa námskeiða og getur fólk í þessum félögum því sótt þau námskeið FRÍTT. Þau sem vilja nýta sér þetta þurfa að merkja við viðkomandi félag þegar þau skrá sig á námskeið í gegnum vef miðstöðvarinnar.


Námskeiðin sem um ræðir eru undir flipanum Stéttarfélög hér á síðunni. Nokkur námskeið eru komin inn og fleiri gætu átt eftir að bætast við.


Þessu til viðbótar geta aðilar að Kili og þau sem eru í Verk Vest eða Verkalýðs- og sjómannafélagi Bolungarvíkur og starfa hjá ríki eða sveitarfélögum sótt íslenskunámskeið sér að kostnaðarlausu.


Það er von Fræðslumiðstöðvarinnar að sem flest félagsfólk í Verk Vest, Verkalýðs- og sjómannafélagi Bolungarvíkur, Sameyki og Kili nýti sér þetta góða boð stéttarfélaganna til þess að læra eitthvað nýtt og skemmtilegt, hvort sem er til að eflast í daglegu lífi eða starfi.

Eldri færslur