Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Íslenska - talnámskeið - Ísafjörður

26. maí 2026

Námskeið ætlað fólki sem hefur nokkurn skilning á málinu og/eða hefur tekið tvö eða fleiri námskeið í íslensku og vill efla sig sérstaklega í notkun talmáls.

Markmið námskeiðsins er að hjálpa nemendum að nota íslensku í daglegum aðstæðum og efla sjálfstraust í samskiptum. Lögð er áherslu á grunnorðaforða fyrir daglegt líf og að æfa samtöl. Námskeiðið hentar bæði þeim sem vilja bæta færni sína í töluðu máli og auka orðaforða sinn.

Kennari: Elín Þóra Stefánsdóttir.
Tími: Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17:30-19:30. Hefst 26. maí og lýkur 25. júní. 
Lengd: 20 klukkustundir (10 skipti).
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafjörður. 
Verð: 29.500. kr.

Almennt gildir að til þess að ljúka námskeiði hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða með viðurkenningu þarf að lágmarki 75% mætingu.

Þau sem eru í Verk Vest eða Verkalýðs og sjómannafélaga Bolungarvíkur og starfa hjá ríki eða sveitarfélögum geta sótt námskeiðið sér að kostnaðarlausu. Fræðslumiðstöðin hvetur aðra þátttakendur til að kanna með endurgreiðslu námskeiðsgjalds hjá sínu félagi.

Hópur Dags Tími Staðsetning Verð Skráning