Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Öldrunarlyfjafræði - f. sjúkraliða

Hefst 5. október 2026

Námskeiðið er ætlað sjúkraliðum.  

Á námskeiðinu verður fjallað almennt um lyfjagjöf með tilliti til þeirra breytinga sem verður á líkamanum við öldrun. Farið verður yfir nokkra stóra lyfjaflokka, s.s. öndunarfæralyf, hjartalyf, tauga- og geðlyf, sykursýkislyf og lyf við hrörnunarsjúkdómum. 

Leiðbeinandi: Bryndís Þóra Bjarman, lyfjafræðingur.
Tími:  Mánudagur, þriðjudagur, miðvikudagur og fimmtudagur 5.-8. október kl. 17:00-21:00.  
Lengd: 16 klst  (4 skipti).  
Staður:  Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði. Kennari verður í fjarfundi. 
Verð: 64.000 kr. - námskeiðið er styrkhæft hjá Sjúkraliðafélaginu.  

Námsmat: 100% mætingarskylda og virk þátttaka á námskeiðinu. 

 

Hópur Dags Tími Staðsetning Verð Skráning