Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Pólska fyrir byrjendur - Ísafjörður

29. september 2025

Námskeið fyrir þau sem hafa engan grunn í pólsku. Farið verður í pólska stafrófið og framburð. Orðaforði úr daglegu líf er æfður með mjög einföldum samtölum og verkefnum. Tilvalið námskeið fyrir þau sem eiga samskipti við pólskumælandi fólk, vinnuveitendur, starfsfólk opinberra stofnana og þjónustufyrirtækja og aðra áhugasama.

Kennarinn er frá Póllandi en talar ensku og er að læra íslensku.

Kennari: Jaroslaw Czechowicz.
Tími: Kennt  mánudaga kl. 19:00-21:00 og fimmtudaga kl. 19:30-21:00.
Lengd: 16 klukkustundir (8 skipti).
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði.
Verð: 36.000 kr. Kennslubók ekki innifalin í verði.

Almennt gildir að til þess að ljúka námskeiði hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða með viðurkenningu þarf að lágmarki 75% mætingu. 

ATH.  Fræðslumiðstöðin hvetur væntanlega þátttakendur til að kanna rétt sinn til endurgreiðslu þátttökugjalds hjá sínu stéttarfélagi. 

Hópur Dags Tími Staðsetning Verð Skráning