Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Smáskipanámskeið – vélstjórn < 15 m

Haustönn 2026

Námskeiðið er fullbókað eins og er en það er hægt að skrá sig á biðlista.

Mögulega verða tveir hópar

Þau sem skrá sig 8. maí eða síðar fara á biðlista.

Nám­skeiðið er ætlað þeim sem vilja öðlast atvinnu­skír­teini til að starfa sem vél­stjóri < 750 kW á smá­skipum allt að 15m lengd í strand­sigl­ingum (með að hámarki 12 farþegum og tak­mörkun á farsviði).

Til viðbótar þessu námskeiði þarf að ljúka siglingatíma (þjálfun um borð í skipi) og viðurkenndu öryggisfræðslunámi til þess að fá útgefið skírteini.

Námskeiðið samanstendur af fjarnámi og staðlotum á Ísafirði sem nemendur þurfa að taka þátt í.

  • Forkröfur: Að umsækjandi búi yfir færni sem þarf til að takast á við alla hluta námsins, hafi lokið grunnskóla og sé á 16. ári hið minnsta.
  • Námið er kennt á íslensku og þurfa þátttakendur að hafa nægilega færni í málinu til að geta stundað námið (a.m.k. færni sem samsvarar B1 skv. evrópska tungumálarammanum).
  • Tími: Haustönn 2026. Nánari tímasetning auglýst síðar.
  • Lengd: Námskeiðið samsvarar 15 eininga námi í framhaldsskóla (um hálfri önn). Því má gera ráð fyrir að um 270-360 klst. fari í námið samkvæmt viðmiði fyrir framhaldsskólanemendur. 
  • Staður: Fjarkennt með tveimur til þremur staðlotum á Ísafirði, skyldumæting er í staðlotur.
  • Verð: 255.000 kr.
  • Hámarksfjöldi í hóp: 16.
  • Námsmat: Til að fá prófskírteini að loknu námskeiði þurfa þátttakendur að standast alla þætti námskeiðsins, hvort sem það eru bókleg próf eða verkleg þjálfun.

Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig hér fyrir neðan. Skráning er ekki bindandi en með henni getur Fræðslumiðstöðin haft samband við viðkomandi og veitt nánari upplýsingar þegar þær liggja fyrir.

Nánar um námskeiðið

Náminu er skipt í nokkra námsþætti sem allir mynda eina heild til þessara réttinda, m.a. aðalvél, rafkerfi, önnur kerfi, viðhald og umhirða, bilanaleit og viðgerðir, öryggisbúnaður, vökva- og loftstýringar, hönnun skipa og stöðugleiki, sjóréttur. Sjá nánar á námskrá.is

Kennsluefni, æfingar og lesefni verður á kennsluvefnum Innu en nemendur hafa að auki aðgang að samtali við kennara samkvæmt skipulagi. Nemendur hafa aðgang að náms- og starfsráðgjafa hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða sem þeir eru hvattir til að nýta sér.

Smáskipanám (vélstjórn <15m) kemur í stað þess sem áður var 12m vélgæslunám. Atvinnuskírteini er gefið út að loknu öryggisfræðslu smábáta og skyndihjálparnámskeiði.

Nánari upplýsingar hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða: frmst@frmst.is

Hópur Dags Tími Staðsetning Verð Skráning