Tæknilæsi og tölvufærni - Ísafjörður og fjarkennt
13. október 2026
Námið er ætlað þeim sem vilja efla tæknilæsi sitt og tölvufærni og verða öruggari í notkun stafrænnar tækni, bæði í daglegu lífi og á vinnumarkaði. Tæknin þróast hratt og markmið námsins er að þátttakendur öðlist þekkingu, færni og sjálfstraust til að takast á við þær breytingar sem fylgja sífellt aukinni notkun stafrænna lausna.
Sérstök áhersla er lögð á að byggja upp sjálfstraust gagnvart tölvum og tækni. Þátttakendur kynnast grunnþáttum tölva og stafræns umhverfis og þjálfa hagnýta færni í notkun tölva, snjalltækja og ýmissa stafrænna lausna.
Þau sem ekki hafa lokið námi í framhaldsskóla eru í forgangi, en aðrir eru einnig velkomnir.
Markmið námsins eru að:
- efla tæknilæsi og tölvufærni þátttakenda og búa þá undir tæknibreytingar í daglegu lífi og á vinnumarkaði,
- auka skilning á grunnþáttum stafræns umhverfis og efla færni í stafrænu vinnuumhverfi samtímans,
- styrkja færni og trú þátttakenda á eigin getu til að nýta upplýsingatækni og stafrænar lausnir í starfi,
- styrkja stöðu þátttakenda á vinnumarkaði og auka möguleika þeirra á fjölbreyttari störfum.
Námsþættir:
- Fjarvinna og fjarnám
- Sjálfvirkni og gervigreind
- Skýjalausnir
- Stýrikerfi
- Tæknifærni og tæknilæsi
- Öryggisvitund
Kennt er eftir námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Námið er kennt í húsakynnum Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða á Ísafirði en þátttakendur geta einnig tekið þátt í gengum fjarfund.
Kennari: Ármann Haraldsson.
Tími: Kennt þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17:30-19:30. Hefst 13. október.
Lengd: 42 klukkustundir.
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða Ísafirði og fjarkennt.
Verð: 20.700. kr.
Námsmat: Til að ljúka námi með fullnægjandi hætti þarf að minnsta kosti 80% tímasókn og virka þátttöku.
Minnum væntanlega þátttakendur á að kanna rétt til endurgreiðslu námskeiðsgjalda hjá sínu stéttarfélagi.
| Hópur | Dags | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
|---|

