Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Umferðaröryggi - bíltækni

26. október 2025

Markmið námskeiðsins er að bílstjórinn þekki vegakerfið og helstu hættur sem eru til staðar eða geta skapast í tengslum við ytri aðstæður, s.s. við mismunandi veðurskilyrði. Einnig að hann þekki helstu tegundir og orsakir umferðar- og vinnuslysa og þekki aðferðir við slysavarnir.

Námskeiðið er hluti af endurmenntun atvinnubílstjóra. Bílstjóri sem ekur stórri bifreið í ökuréttindaflokki D1 og D til farþegaflutninga í atvinnuskyni og í flokki C1 og C til vöruflutninga í atvinnuskyni skal hafa lokið 35 kennslustunda endurmenntun á síðustu fimm árum fyrir endurnýjun. Til þess að ljúka endurmenntuninni þurfa bílstjórar að ljúka þremur kjarnanámskeiðum; Vistakstur - örygig í akstri, Umferðaröryggi og Lög og reglur. Auk þess þarf að klára annað hvort námskeið um farþegaflutninga eða vöruflutninga og eitt val námskeið, til dæmis skyndihjálp.

Þú getur skoðað stöðu þína í endurmenntun hér.

Tími: Sunnudagur 26. október kl 9:00-16:00.
Lengd: 7 kennslustundir.
Staður: Staðkennt í Fræðslumiðstöð á Ísafirði en einnig fjarkennt á Zoom á sama tíma.
Kennari: Skúli Berg
Verð: 18.600 kr. Minnum á að flest stéttarfélög endurgreiða hluta þátttökugjalds.

Til þess að ljúka námskeiðinu með fullnægjandi hætti þar að sitja alla tíma þess. Þátttakendur í fjarfunda þurfa að vera með virka myndavél og hljóðnema.

Hópur Dags Tími Staðsetning Verð Skráning