Útivist og hreyfing
27. maí 2025
Námskeið fyrir fatlað fólk.
Útivistarnámskeið þar sem ýmislegt skemmtilegt verður gert, göngutúrar, æfingar, fjöruferð og farið á púttvöllinn og teknar æfingar í golfi. Leiðbeinandinn Lilja Borg er ævintýragjörn, jákvæð og skemmtileg stemmingskona sem hefur áhuga á íþróttum, hreyfingu og lífsstíl.
Mæting í fyrsta tíma inn í Tunguskógi á bílaplaninu við Tjaldsvæðið.
Leiðbeinandi: Lilja Borg Jóhannsdóttir.
Kennslustaður: Ísafjörður og nágrenni.
Lengd: 12 klukkustundir (8 skipti).
Kennslutími: Þriðjudagar og fimmtudagar kl. kl 16:15-17:45. Hefst 27. maí og lýkur 26. júní. (Ekki kennt 29. maí og 17. júní).
Verð: 5.600. kr.
Hópur | Dags | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
---|