Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Ókeypis námskeið í sálrænum stuðningi

Þann 24. október næstkomandi munu Rauða kross deildir á norðanverðum Vestfjörðum standa fyrir námskeiði í sálrænum stuðningi. Námskeiðið verður haldið í Fræðslumiðstöð Vestfjarða að Suðurgötu 12 Ísafriði og stendur frá kl. 10:00 til kl. 14:00. Kennarar eru þær Auður Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur og Harpa Guðmundsdóttir iðjuþjálfi.

Á námskeiðinu fræðast þátttakendur um gildi sálræns stuðnings í aðstæðum sem geta valdið áföllum. Þátttakendur læra að gera sér betur grein fyrir eðlilegum viðbrögðum fólks sem lendir í sársaukafullum aðstæðum og hvernig þeir geti veitt stuðning og umhyggju.

Viðfangsefni eru meðal annars:

* mismunandi tegundir áfalla
* áhrif alvarlegra atvika á einstaklinginn
* sálræn skyndihjálp
* stuðningur við úrvinnslu alvarlegs atviks
* sorg og sorgarferli.

Námskeiðið er ókeypis en mikilvægt að áhugasamir skrái sig. Tekið er við skráningum hjá Fræðslumiðstöðinni í síma 456 5025 eða á vef Fræðslumiðstöðvarinnar.

Deila