Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

HACCP 1 – Góðir starfshættir við meðferð matvæla

3. nóvember 2026

Námskeið fyrir starfsfólk matvælafyrirtækja, mötuneyta, veitingastaða og hótela sem vilja auka þekkingu sína á örverufræði og réttri meðhöndlun matvæla. 

Efni námskeiðs: 

  • Örverufræði – hegðun og útbreiðsla örvera – matarsjúkdómar og skemmdarörverur. 
  • Meðhöndlun matvæla – hitastig, krossmengun, frágangur og umgengni. 
  • Hreinlæti og þrif – þrifaáætlanir, þrifaskráningar og sýnataka.  
  • Persónulegt hreinlæti – vinnufatnaður, handþvottur og tilraun með Glóa. 
  • Samvinna, ábyrgð og traust. 
  • Stutt kynning á HACCP.  

Námskeiðið er haldið í samstarfi við Sýni. 

Leiðbeinandi: Sérfræðingur frá Sýni.
Tími:  Þriðjudagur 3. nóvember kl. 12:45-15:45.
Lengd: 3 klst  (1 skipti).  
Staður:  Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði. 
Verð: 35.000 kr. 

Minnum væntanlega þátttakendur á að kanna rétt til endurgreiðslu námskeiðsgjalda hjá sínu stéttarfélagi.

Hópur Dags Tími Staðsetning Verð Skráning