Forsíða
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
frmst@frmst.is
456-5025

Njála, Sturlunga og Spánn

Endurmenntun HÍ hefur auglýst þrjú menningartengd námskeið sem kennd verða í gegnum fjarfundabúnað.

Á tveimur þeirra fjallar Einar Kárason um Íslendingasögur en Einar er kunnur fyrir að segja skemmtilega frá og gefa sögunum aukið og jafnvel nýtt líf.

Fyrra Íslendingasögunámskeiðið kallast Höfundur Njálu en þar verður farið yfir helstu kenningar sem fram hafa komið um uppruna Njálu, og umræður sem orðið hafa um hinn óþekkta höfund bókarinnar, frægasta fornrits okkar Íslendinga. Námskeiðið er kennt tvö mánudagskvöld, 12. og 19. okt. kl. 20:15-22:15 og er hver að verða síðastur að skrá sig.

Seinna námskeiðið með Einari er Leiðarvísir að Sturlungu þar sem hann endursegir með eigin orðum helstu viðburði og leikendur á sviði 13. aldar, með aðaláherslu á Örlygsstaðabardaga og löngum aðdraganda hans, Flóabardaga og að lokum Flugumýrarabrennu og leiðbeinir inn um bakdyr sem opnast að veröld þessarar mögnuðu bókar. Námskeiðið er kennt þrjú miðvikudagskvöld, 11., 18. og 25. nóv. kl. 20:15-22:15.

Þriðja menningartengda námskeiðið sem boðið verður upp á í fjarfundi er Pílagrímsleiðin til Santiago de Compostella með Jóni Björnssyni. Þar mun Jón fjalla um Jakobsveginn og söguna sem tengist þessari leið s.s. dýrlinga og helga dóma, pílagríma og pílagrímsferðir og trú og táknfræði miðaldakirkjunnar. Námskeiðið verður kennt þrjú kvöld, mán. 26. okt., mið. 28. okt. og mán. 2. nóv. kl. 20:15 - 22:15.

Nánari upplýsingar og skráning eru hjá Fræðslumiðstöðinni, annað hvort hér á vefnum eða í síma 456 5025.
Deila